|
||||||||||||||||||||
7. apríl 2003 tóku gildi lög á Íslandi sem kallast Raforkulögin (65/2003). Samkvæmt lögunum er skilgreint hvað er raforkuframleiðsla, raforkusala og raforkudreifing. Neytendur geta valið þann raforkuframleiðanda sem þeim hugnast og keypt raforkuna af honum. Þeir er þó bundnir því orkudreifingarfyrirtæki sem er á þeirra svæði. Samkvæmt lögunum þá gat hver sá sem er aflmældur
og notar meira afl en 100 kW valið hvaða raforkuseljanda sem hann vildi
frá 1. jan 2005. Frá 1. jan. 2006 geta
allir valið sér orkuseljanda eftir eigin höfði (þó háð því að
fyrirtækið vilji taka viðkomandi í viðskipti). Búið er að skipta
landinu á milli 7 raforkufyrirtækja sem sjá neytendum fyrir rafmagni og
er hver og einn tengdur einhverjum þeirra, háð búsetu. þessi
fyrirtæki eru: Síðan gerðist það að ríkisfyrirtækin Rarik, Okubú Vestfjarðar, og Landsvirkjun sameinuðust um eitt sölufyrirtæki sem var formlega stofnað 10. mars 2006, og heitir Orkusalan.ehf., svo nú mun orkusölufyrirtækjunum fækka um eitt (uppl á heimasíðu Landsvirkunar, Rariks og Orkub. V.fjarða). Öll þessi orkufyrirtæki sameinuðust um fyrirtækið Netorka,
sem sér um miðlægan gagnagrunn sem heldur utan um öll raforkuviðskipti.
Netorka tók upp sænskan hugbúnað til að Rafmagn er óskaplega fjölbreyttur orkugjafi, því má breyta taplítið í hreyfingu, hita, kælingu, ljós og gervigreind (tölvur og stýringar). Ódýrt rafmagn er því öllum mjög mikilvægt. Þótt rafmagn sé fjölbreytt orka, þá hefur hún þann galla að ekki er hægt að geyma hana eins og olíu, og erfitt er að geyma frumorkuna, rigningavatnið eða jarðhitann. Þetta gerir það að verkum að framleiða þarf rafmagn á sama augnabliki og það er notað, því verður sala á raforku mjög háð því hversu jöfn notkunin er og hafa raforkufyrirtækin bæði orkutaxta og afltaxta. Hinn almenni notandi notar rafmagn eftir orkutaxta, en þar sem verðskrá fyrirtækjanna er mjög fjölbreytileg, bæði í verði á orku og mismunandi fastagjaldi, þá verður það erfiðara en ell að velja þann orkusala sem er hægkvæmastur hverju sinni eða vita hvort afltaxti gæti verið hagkvæmur kostur. Til þess að auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum að velja sér raforkusala, þá var í árslok 2005 stofnað ráðgjafafyrirtækið Orkumiðlun ehf. Sérfræðingur þess veitir fyrirtækjum og einstaklingum ráðgjöf við val á raforkusala eftir notkun sinni og sér um að flytja viðskiptin á milli orkufyrirtækjanna. |