Þegar við tölum um mismunandi raforku þá má flokka raforku eftir
1. orkutaxta
2. afltaxta
3. ótryggt rafmagn
1. Þeir sem þurfa öruggt rafmagn, en notkun þess dreifist ójafnt yfir daginn, t.d. mikla notkun yfir stuttan tíma dagsins, en litla á öðrum tíma eins og t.d. yfir nóttina. Fyrir þá hentar orkutaxtinn best.
2. Þeir sem hafa jafna notkun allan sólarhringinn með litlum sveiflum, þeir geta notað afltaxta. Hér má nefna þá sem reka dælur, kæla og frysta. Þetta á líka við um atvinnustarfsemi sem er opin stóran hluta sólarhringsins alla daga vikunnar eins og söluturnar.
3. Einstaka notendur geta verið án raforku hluta dagsins eins og þegar álag er mest á kerfinu, sumir geta jafnvel verið alveg án rafmagns í lengri tíma vegna þess að þeir geta notað aðra orkugjafa eins og olíu. Fyrir þessa notendur getur ótryggt rafmagn verið ódýr og góður kostur, t. d. þeir sem nota rafmagnið til að hita upp vatn. Í því sambandi er rétt að benda á varmadælur sem mjög hagstæðan kost með rafmagnupphitun.
Orkumiðlun ehf. hjálpar þér að velja vöru sem hentar.
Hafðu samband: si.nuldimukro@nuldimukro
Sími: 534 00 54